Sala og verð.

Á Tjörn fer útungunin af stað á vorin og koma fyrstu ungarnir í mars og fram í maí á hverju ári . Eftir það tekur svo uppeldið við og er því haldið áfram á meðan eitthvað er til af fuglum eða fram eftir hausti ef svo vill til. Kappkostað er að hafa fallega og heilbrigða fugla og fjölbreytta liti og eru hænurnar í mörgum litum og hanarnir skrautlegir. Þó er mismikið af hverjum lit, enda ekki alveg hægt að stjórna því. Hér á bænum eru til ýmsir litir og litaafbrigði og má þar t.d. nefna eftirfarandi: Svartar, svartar með ljósum rákum, svartar með hvítum doppum, dökkbrúnar, kaffibrúnar, millibrúnar, ljósbrúnar, hvítar, rauðbrúnar, ljósgráar, steingráar, gular, dökkgráar, bleikar, allavega yrjóttar, rákóttar og doppóttar. Hænur með stóra toppa, brúska, vangaskegg og fiðraðar á fótum. Einnig eru þær með allavega gerðir af kömbum og hanarnir líka og má þar nefna einfaldan kamb, krónukamb, kórónukamb og rósakamb. Ungar eru seldir frá því að vera daggamlir og alveg upp í fugla sem eru að komast í varp svo og ungar hænur sem byrjaðar eru að verpa. Daggamlir ungar eru að sjálfsögðu seldir ókyngreindir og er það því á ábyrgð kaupanda hvað hann fær mikið af hænum og hvað mikið af hönum. Það sama gildir um unga, sem eru þriggja vikna. Þegar ungar eru orðnir 6 vikna er oftast hægt að sjá hvort kynið það verður en það er samt ekki alveg öruggt jafnvel á þeim aldri. Ungar sem eru orðnir 8 víkna eru kyngreindir rétt að segja má í um 99% tilvika og er tekinm ábyrgð á sölunni frá þeim aldri. Ef seldir eru 8 vikna gamlir ungar og í hópnum leynist einn eða fleiri hanar (aldrei hægt að fyrirbyggja það alveg) þá verður það bætt upp með fugli af réttu kyni eða endurgreitt. Betra er samt að kaupa 8 vikna unga þegar upp er staðið því þá eru þeir komnir af byrjunarfóðri, þurfa ekki að vera undir hitaperum og mesti kostnaðurinn og vinnan er frá. Oft er ekkert ódýrara að kaupa daggamla unga, ala þá í nokkrar vikur, nota hitaperur og fleira og svo reynist kannski helmingurinn hanar.Og þurfa svo að bæta við sig eldri ungum til að ná upp í þann fjölda sem ætlað var að vera með í upphafi. En þetta er að sjálfsögðu álitamál og skiptar skoðinar um þetta eins og annað og verður hver og einn að gera upp við sig hvað hann vill gera og kaupa. Vildi bara benda á þennan möguleika. Hér fyrir neðan kemur svo verðlistinn eins og hann er og verður í ár. Það skal tekið fram að lítil hækkun hefur orðið á ungunum undanfarin ár en eins og öllum er ve lkunnugt um hefur allt hækkað mikið undanfarið. Kostnaður hefur hækkað mikið sérstaklega sl.2 ár.Má t.d. geta þess að fóðrið hefur hækkað um rúml. 2000 kr pokinn undanfarið og hækkar enn .Einnig hafa spænir,ílát og fl.sem notað er vegna fuglanna hækkað mikið.

 

Verðlisti fyrir árið 2010.

Daggamlir ungar ............ 800 kr. .......................... Útungunaregg 1 sk............150 kr.

Vikugamlir ungar ........... 900 kr. .......................... Útungunaregg 10 stk......1500 kr.

2ja vikna ungar .............. 1000 kr. ........................ Útungunaregg 20 stk.......3000 kr.

3ja vikna ungar ...............1100 kr...........................Útungunaregg 30 stk.......4500 kr.

4ra vikna ungar ..............1200 kr.

5 vikna ungar ..................1300 kr.

6 vikna ungar ..................1400 kr.

7 vikna ungar ..................1500 kr.

8 vikna ungar ..................1600 kr. (kyngreindir)

12 vikna ungar ...............2000 kr. ................................Ársgamlar hænur...5000 kr.

Unghænur .......................2500 kr. (16 vikna).............Fullorðnir Hanar.....5000 kr.(ársgamlir)

Unghænur í varpi ..........3500 kr. (20 vikna) ............Ungar Varphænur..4500 kr.(40 vikna)

Einngöngu eru seldir fallegir og heilbrigðir fuglar og allt kapp lagt á að svo sé. Þó ber að hafa það í huga að stundum eru ungar stéllausir á þessum aldri vegna áreitis sem byrjað er í hópnum en stélið kemur strax aftur þegar róast fer í hópnum aftur eða þegar fuglar fara á nýjan stað og eru færri. Þetta fer þó mikið eftir því hversu stór hópurinn er sem fuglarnir eru í. Því stærri hópur,því meira áreiti er. Úr minni hópum er lítil hætta á að fuglar séu stéllausir eða mikið reittir. Þetta er vegna goggunar raðirinnar sem byrjuð er í hópnum en hún byrjar yfirleitt á 3-4 viku. Ungar eru kyngreindir 5-6 vikna gamlir en á þeim aldri getur alltaf leynst einn og einn hani innan um en þegar ungar eru orðnir 8 vikna gamlir á kyngreiningin að vera 100% örugg og þá er tekin ábyrgð á þeim.

Ef svo óheppilega vill til að kaupandi fær hana með á þeim aldri (8 vikna) sem er fremur sjaldgæft en getur þó alltaf komið fyrir er það bætt upp með fugli af réttu kyni eða fuglinn er endurgreiddur.