Opið heim !
Opið heim.
Gert er ráð fyrir að opna nú í sumar ef plön ganga eftir en búið hefur verið lokað frá því bruninn varð hér sl.ár.
Mjög mikill ferðamannastraumur er hér á Vatnsnesinu fram eftir öllu hausti og virðist sem hann sé að lengjast í báðar áttir.Ferðamenn eru farnir að koma fyrr á vorin og eru á ferðinni lengur fram eftir hausti.
Margir koma hingað heim til að skoða Tjarnarkirkju sem stendur hér á hlaðinu einungis um 50 metra frá íbúðarhúsinu og skoða í leiðinni leiði Agnesar og Friðriks sem hér eru en það er eitt þekktasta leiði landsins.
Þau eru grafin hér í kirkjugarðinum á Tjörn.
Mikið af þessum gestum hafa komið við hérna enda stutt á milli kirkju og bæjar,keypt egg og beðið um að fá að skoða Landnámshænuna.
Því hefur nú verið ákveðið að opna fyrir gesti gegn vægu gjaldi hingað heim að Tjörn og bjóða fólki að koma og skoða Landnámshænuna í sínu rétta umhverfi,skoða aðstæður hjá henni og hvernig hún lifir.
Einnig að skoða eggin í vélunum sem eru í útungun,sjá unga skríða úr eggjum,skoða litla unga og fá að halda á þeim og kíkja á kjúklinga á ýmsum aldri.
Eigandi mun fara yfir reksturinn sem og fræða fólk um Landnámshænuna.
Þetta er ein besta kynning sem um getur en það er að sjá fuglinn lifand með eigin augum frekar en á mynd þó það sé betra en ekkert.
Mun ég sjálfur fara með fólkinu um hjá fuglunum,
fræða það,upplýsa og svara spurningum ef eihverjar eru og fólk vill.Að lokinni ferð um búið verður svo boðið uppá heita kjúklingasúpu með brauði og spjall.
Gjaldið verður 800 kr en frítt fyrir yngri en 8 ára.
Þetta gjald er ekki hugsað sem aðgangseyrir heldur sem styrkur til Landnámshænunnar.
Og verður innkoman eingöngu notuð til kynningar á Landnámshænunni t.d. endurprentunar á bæklingi, úgáfu póstkorta og fleira.
Það verður
því verið sett upp stórt og áberandi skilti hér niður við veg á Tjörn og verður annað minna skilti sett upp nú í sumar við vegamótin að Hvammstanga og þjóðveg 1 til að benda á þennan möguleika og fólki boðið upp á að koma
heim og skoða ræktunina.
Skiltin hannaði ég sjálfur en þau eru framleidd hjá Plexigler í Reykjanesbæ.
Skiltin eru með upplýsingum á íslensku og ensku fyrir ferðamenn og er það 150 cm x 250 cm að stærð sem er hér niður við veg en hitt skiltið verður minna um sig eða 100 x 150 cm.
Verið velkomin heim á Tjörn.