![]() |
Heilsufar og sjúkdómar hænsnfugla!
Sjúkdómar eru til og geta herjað á hænsnfugla eins og aðrar lifandi verur.Munið að það er gott að venja sig á að nota alltaf einnota hanska þegar verið er að eiga við og eða handfjatla fuglana.Góðir hanskar fást t.d. í Rekstrarvörum og eru 100 stk.í pakkanum.Það er nauðsynlegt fyrir fugla eigendur að eiga slíka hanska.Og þeir kosta ekki mikið.Allir eða flestir kannast við camfilobackter og salmonellu en þeir sjúkdómar eru í eða koma oftast nær upp í stóru verksmiðjubúunum. Ég hef ekki heyrt um þá hjá þeim sem eru með fáar hænur til heimilisins eða sér til gamans. En allir fuglar geta jú fengið þessa sjúkdóma. Verður þó ekki fjallað um þá sjúkdóma hér en fólk getur, ef það vill, kynnt sér þá á heimasíðu Yfirdýralæknis og hjá Landlæknisembættinu.
Þó nokkuð hefur verið haft samband við mig vegna veikra fugla og hef ég reynt að hjálpa til eins og ég get. Ætla ég að fjalla um veikindi í hænum sem virðast oftast koma upp.
Lömun:
Borið hefur á því að fólk hafi fundið eina og eina hænu sem virðist vera lömuð. Þetta lýsir sér með því að ekkert virðist bera á neinu er komið er í kofann en daginn eftir er kannski ein hæna sem liggur. Hún virðist þó vera hress, lyftir höfði, blakar vængjum en fæturnir liggja út frá henni til annarrar hliðar og virðast vera stífir. Hænan getur ekki borið þá fyrir sig og liggur. Oftast er um unga fugla að ræða, unghænur sem eru nýbyrjaðar í varpi og stafar þetta oftast nær af eggjastíflu, en ég kalla það svo (veit ekki um neitt sérstakt heiti á þessu). Fuglinn kemur sem sagt ekki frá sér egginu, það virðist vera of stórt og stendur fast í mjaðmagrindinni.Mér hefur reynst best að taka fuglinn undir aðra hendina, láta hausinn snúa aftur,og setja tvo fingur milli fótanna á hænunni og strjúka þéttingsfast eftir kviðnum og ná þannig egginu út, en fyrir alla muni gerið þetta varlega svo þið skaðið ekki fuglinn.Sum egg er mjög föst í fuglinum, virðast standa pikkföst í mjaðmagrindinni og nást ekki út með því að strjúka fuglinn. Hef ég þá brugðið á það ráð að setja á mig einnota hanska, setja fingur inní fuglinn,finna fyrir egginu og reka í það pinna og brjóta það þannig, hallið svo fuglinum niður og ætti eggið þá að renna út úr fuglinum. Farið bara mjög varlega og passið að skaða ekki fuglinn. Gott er að nota áhald sem er eins og blýantur að sverleika en passið að þa ðsé ekki oddhvasst svo það skaði ekki fuglinn innvortis. Fuglinn er stirður og valtur fyrst á eftir, það tekur hann um 3-5 daga að rísa á fætur aftur, hafið hann sér í nokkra daga og hleypið honum síðan saman við hópinn, fylgist bara vel með honum í nokkra daga.
Önnur lýsing á lömun sem borið hefur á er sú að fuglinn getur ekki staðið í fæturna, hann liggur með fætur undir sér en er hress að öðru leyti, tekur vatn og fóður en rís ekki upp. Af minni reynslu getur þetta verið þrennt. Í fyrsta lagi B-vítamínskortur og hef ég mulið eina sterka B-combín töflu út í vatnið hjá fuglunum og hafa fuglar rétt við af þessu. Töflurnar fást í lyfjabúðum og öðrum verslunum og er ein tafla sett í hvern lítra af vatni. Í öðru lagi er ef til vill eitthvað að eða klikkar í höfðinu á fuglunum, sem ég hef heyrt um að komi fyrir, en þá er ekkert hægt að gera og fuglinn fjarar út á stuttum tíma. Loks getur þetta verið ígerð, sem er algeng hjá varphænum og vel þekkt. Ígerðin er þá í þörmunum og eggjaleiðurum og ef hún er mikil getur hún orsakað lömun.Auðvelt er að sjá hvort um ígerð er að ræða þar sem fuglinn er blautur við eggjaopið(endaþarminn) og er guleitt klístur á honum og í kringum eggjaopið.
Notið einnota hanska og þvoið ykkur vel á eftir og passið að fara ekki á milli fugla eftir að vera búin að hjálpa veikum fugli með igerð nema vera hrein,þetta getur verið smitandi á milli fugla.
Ef fuglinn sýnist slappur eða er að lamast má reyna að nota penecillin, notið litla sprautu, mjög granna nál og sprautið ca 2 ml í fuglinn í 4 daga. Best er að sprauta í lærið. Ath. efnið er langvirkandi og ekki má nota afurðir, hvorki egg né kjöt af fuglinum í 3 vikur á eftir. Ef eitthvað ber á þessu hjá ykkur og fuglinn drepst þá finnst mér sjálfsagt að senda fuglinn, eða fuglana, að Keldum til rannsóknar og fá úr því skorið hvað var að. Þannig komumst við að því hvað þetta er og hvað er hægt að gera til lækningar ef hægt er að lækna þetta á annað borð. Dýralæknir í alifuglasjúkdómum kryfur þá fuglinn og sjúkdómsgreinir hann. Þó er það oftast svo að ef fuglar veikjast þá virðist vera erfitt að fá þá til að rétta við aftur og þeir drepast. Það má þó alltaf reyna og gera það sem hægt er. Oft tekst manni líka að bjarga þeim og þá er sigur unninn. Betra að reyna en að gefast upp strax..
Einnig er hægt að setja nokkra dropa í vatnið af penecillini en farið varlega í það og passið að setja ekki of mikið.T.d. 1 dropa í hvern líter af vatni,það ætti að duga. Ekki hirða eða nota afurðir í 3 vikur frá eða úr fugli sem hefur verið á penscillini .
Svo er það þekkt hjá hænum eins og öðrum lifandi verum en það að fugl liggur dauður einn morgunin þegar komið er í húsið til þeirra,það sést ekkert á fuglinum,hann liggur eins og hann sé sofandi og jafnvel með hausinn undir væng.......þetta kemur helst fyrir hjá eldri fuglum sem orðnir eru þriggja ára eða eldri.......fuglinn hefur orðið bráðkvaddur.
Stundum ber á nokkurs konar ríðu í fuglum eða jafnvægistruflun og á þetta oftast við um unga fugla, frá nokkurra daga gömlum og uppí að vera um 20 vikna. Oftast kemur þetta þó þegar ungarnir eru um 8-12 vikna gamlir. Þetta kallast Hnýslasótt og verkar á jafnvægisskynið hjá fuglunum. Gott ráð við þessu er að setja "súlfa" í vatnið hjá þeim. Þetta lyf fæst hjá dýralæknum í töfluformi,setjið 2-3 töflur í 1 líter af vatni og leysið þær upp.
Setjið svo ca.1/2 dl.í vatnið hjá fuglunum. Passið að taka veika fuglinn/fuglana sér en látið hina ekki komast í vatnið nema þetta sé í mörgum fuglum í sömu hjörð. Ef ílátið er minna en 5 lítrar þá minnkið skammtinn um helmig og geymið afganginn til næstu daga. Gefið þetta lyf í allt að 7 daga í vatnið hjá fuglunum. Fuglinn/fuglarnir ættu að rétta af á fimm til sjö dögum. Misjafnt þó eftir einstaklingum en oftast á þessum tíma.
Allar lifandi verur geta fengið flær og lýs á sig,hænsni er þar engin undantekning. Ef tekið er eftir að fuglinn er órólegur,alltaf að plokka sig og snyrta þá takið hann upp og skoðið vel. Það sést vel á fuglinum ef hann er með fló því þetta eru litlar pöddur sem skríða um allt á honum. Stundum er lítið af þessu en oft er fuglinn morandi í þessu. Helst fá fuglarnir fló ef þeir eru mikið lokaðir inni og geta ekki baðað sig vel. Og miklir möguleikar eru á að það sé fló á hænum ef menn eru með dúfur og eða það er mikið af Starra á svæðinu.Starinn er orðlagður fyrir að vera með fló. Best er að leyfa hænunum að vera úti við,eins mikið og hægt er og sjá til þess að þær komist á blöndu af mold og sandi,þá baða þær sig í því og hreinsa húðina. Þegar fólk sér fuglinn liggja á hliðinni eða á bringunni og ausa yfir sig mold og sandi er hann að þrífa sig. Athugið að fuglinn er 39 gráðu heitur en maðurinn er 37-37,5 stiga heitur og fuglafló lifir ekki á okkur. Hún getur farið á okkur og bitið og koma þá litlar rauðar bólur sem klæjar í en flóin lifir ekki nema í 1-2 tíma á okkur og fjölgar sér ekki á mannshúð. Svo verið óhrædd við þetta. Fætur fugla eru þaktir hornflögum og mismunandi að lit og áferð og fer það eftir aldri á fuglinum. Ungir fuglar eru með sléttar hornflögur og litur á fótunum er gulur,ljós,bleikur eða dökkur en flögurnar liggja þétt saman og eru glansandi á fótum ungra fugla. Fló getur líka farið á fætur fugla en aðallega á eldri fuglana. Þegar hænan eldist verður liturinn á hornflögunm grá hvítur og þær verða grófari á að líta. Fló getur skriðið undir hornflöguna og búið um sig þar. Þetta sést vel ef flögurnar fara að standa út í loftið og virka grófar og gysnar. Þetta getur orðið til þess að fuglinn heltist,líður illa og þrífst illa. Besta ráðið við þessu er að strjúka með tusku eða pensli, matarolíu á fætur fuglanna og er nóg að gera þetta einu sinni í mánuði. Flóin þolir ekki olíuna og drepst strax. Eins drepur olían nit flónna þar sem hún hefur verp henni undir hornflögurnar. Fuglinn sjálfan er svo hægt að baða uppúr volgu vatni með örlitið af grænsápu í ef mikið ber á þessu. En athugið að hafa sápuvatnið mjög milt og látið fuglin þorna vel. Sápan skemmir náttúrulegu fituna í fiðrinu og þarf því að vera hlýtt hjá fuglinum á meðan hann jafnar sig eftir baðið og þorna . En flóin drepst strax við þetta vegn sápunnar. Hreinsið svo út hjá fuglinum,loftið vel út og berið nýtt lag af spónum eða hálmi undir þá. Þá ætti flóin að hverfa úr húsinu og af fuglinum. Eins er hægt að fá flóarlyf hjá dýralæknum og í gæludýrabúðum ef fólk vill athuga það. Fuglafló er ekkert öðruvísi en mannafló eða fló á köttum eða hundum. Það þarf bara að meðhöndla hana eins og annað ef hún kemur upp á stofninum hjá manni,fló er til á öllu sem lifir,hænur sleppa ekkert frekar við hana en flest allt annað. Gangi ykkur vel í báráttunni við flónna ef hún kemur upp hjá ykkur.
Ef komið er að fugli sem liggur á hliðinni eða bakinu og hann sparkar mikið,hreifist hratt í hringi og veltist um þá er sennilegasta skýringin að það standi eitthvað í fuglinum. Þetta getur komið ef fólk er að gefa fuglunum brauð og molarnir eru of stórir. Fuglarnir eru gráðugir í brauðið og taka eins mikið til sín á sem stystum tíma því jú alltaf er þetta baráttan um brauðið. Þá er hættan á því að þeir gleypi bæði of marga og stóra mola í sig á of stuttum tíma. Brauðið er þurrt og raðar sér því niður eftir vélindanu og endar svo á að fylla vélindað uppi kok og stoppar þar með alla öndun. Fuglinn kafnar þá ef ekkert er að gert. Best er að taka fuglinn upp,halda undir magann á honum(bringuna),láta stélið snúa upp og hausinn niður (hvolfa fuglinum) og berja þéttings fast á bakið,byrja efst og fær sig niður að stélinu og gera þetta nokkrum sinnum þar til um losnar. En farið varlega og berjið ekki mjög fast eða harkalega í fuglinn. Þið finnið strax þegar þetta losnar og öndunin breytist strax. Látið fuglinn drekka vatn strax á eftir og setjið hann sér um stund á meðan hann jafnar sig. Þetta getur tekið nokkra tíma fyrir hann að rétta af. Hafið nóg af vatni hjá honum á meðan en alls ekkert fóður.Til að koma í veg fyrir svona þá er gott ráð að bleyta aðeins í brauðinu með vatni áður en það er gefið .Gott er t.d. að stinka vatni yfir brauðið daginn áður en það er gefið til fuglanna. Þá er það meyrt og rakt og minni hætta á uppákomu eins og að frama greinir. Gangi ykkur vel.
Flensan:
Allir eða flestir hafa heyrt fjallað um fuglaflensuna sem hefur komið upp í fuglum víða undanfarin misseri. Fuglaflensa hefur verið til í nokkuð mörg ár og eru til margar tegundir og afbrigði af henni. Það afbrigði sem mest hefur verið fjallað um er stofn H5H1 svokallaður og er vitað til þess að hann hafi farið í menn. Veiran fer ekki í menn nema stökkbreytast og þarf hún að hýsast í öðru dýri, t.d. svínum til þess að geta breytt sér og farið í menn. Að vísu hefur verið mikið um "andlega" fuglaflensu hér á landi síðan í haust (2005) og hefur hún lagst þungt á marga en sjálf flensan eða veiran hefur ekki enn greinst hér á landi og gerir vonandi ekki. Að sjálfsögðu þarf að fara að öllu með gát og taka slíkt alvarlega eins og flensan er og fara eftir reglugerðum og leiðbeiningum sem um þetta gilda. Það er líka alveg óþarfi að upplifa hana fyrirfram eins og svo margir hafa gert. Fuglaflensan hefur farið í menn í Asíu og þar er allt önnur aðstaða en hér er og allt annar aðbúnaður, reglugerðir og hreinlæti. Fuglar eru geymdir í opnum bambusbúrum úti á götu, margir saman eða í kofaskrifli sem varla tollir saman. Greinlegt er á myndum að það er ekkert borið undir fuglana og allur aðbúnaður og hreinlæti í lamasessi. Allt vaðandi í driti og öðrum óhreinindum og börnin að leika sér í þessu og með hausa,lappir,vængi og fleira af dauðum fuglum. Hitinn í þessum löndum er líka um eða yfir 40° á celslius, svo að er ekki er hægt að bera þetta saman við hreinlæti, reglugerðir eða aðbúnað sem hér er í gildi , hér er líka svo miklu kaldara en þarna í Asíu en bakteríur og veirur lifa og fjölga sér betur í hita og raka en í röku og köldu lofti. Fuglar sem hingað koma þurfa að fara yfir stórt úthaf þar sem veður eru válind og ferðin tekur nokkra daga. Ég held að ekki sé mikil hætta á að sjúkur fugl hafi ferðalagið hingað af þar sem þessi veira legst á öndunafærin og fygla sem er veikur í öndunarfærum hefur ekki þrek til að fljúga nokkur þúsund kílómetra yfir opnu úthafi.. Við skulum þó vera á varðbergi samt sem áður og gæta fyllsta hreinlætis og fara eftir settum reglum.
Annars bendi ég á síðuna hjá Yfirdýralæknisembættinu. Þar er að finna umfjöllun og reglugerðir um varnir gegn fuglaflensunni.
Vonandi er að þið getið notfært ykkur þetta og að það komi að gagni.
Gott að eiga vegna sjúkdóma.
Nokkur atriði er gott að hafa í huga þegar fólk er með fugla og eins er gott að vera vel undirbúinn ef fugl veikist hjá manni. Því er nauðsynlegt að eiga smávegis af áhöldum og lyfjum ef því verður við komið en gaymið það á afviknum og læstum stað..Munið að alltaf þarf að taka veikan eða slasaðan fugl frá hinum fuglunum annars er hætta á að hann verði drepin. Best er að eiga gott búr,aukabúr sem tekur einn fugl eða svo. Þar getur maður sett veikan fugl á meðan á meðferð stendur og fuglinn þarf að vera sér um tíma. Hundabúr eða eitthvað heimasmíðað hentar t.d. vel. Festið búrið á vegg eða hafið á borði þar sem þægilegt er að nálgast fuglinn og vinna með hann. Notið ALLTAF einnota hanska þegar verið er að höndla veikan eða slasaðan fugl. Margir sjúkdómar geta nefnilega borist með manninum í aðra fugla.Hægt er að fá ýmsar gerðir af hönskum víða í verslunum og t.d. eru seldir pakkar með 100 hönskum í Rekstrarvörum og kostar pakkinn frá um 500 kr og uppí um 800 kr.Fer eftir hvernig hanska maður velur sér.Eigið til öll nauðsynleg lyf eins og "súlfa",B vítamín, kalk,penecilline,Duphacycline og spritt. Einnig þvottafat.sprautur,nálar,tuskur,bómull,pensil,spraybrúsa og matarolíu. Eigið langt og mjótt prik fyrir eggjastíflu og notið það ekki í neitt annað,Sótthreinsið allltaf öll áhöld og annað í hvert skipti eftir notkun. Notið aldrei áhöld eða annað sem þið hafið fyrir fuglana í eða á önnur dýr og það sama gildir um hin dýrin. Notið aldrei áhöld frá öðrum dýrum í fuglana heldur.
Varfærni og hreinlæti skiptir öllu máli hvernig til tekst .
Umhirða og þrif.
Fuglarnir sjá um að þrífa sig sjálfir ef þeir komast út eða hafa aðstöðu innandyra .Ef fuglarnir geta verið úti er minni vandi að halda þeim hreinum en þeir þurfa þá að komast í mold sem er blönduð sandi til að baða sig upp úr. Og þá þarf líka að vera þurrt í veðri. Ef fuglarnir fá ekki að fara út vegna aðstæðna þarf að vera bakki eða önnur aðstaða fyrir þá þar sem sett er blanda af mold og sandi fyrir þá til að baða sig í. Með þessum böðum er fuglinn að hreinsa húðina og fiðrið meðal annars af óværu (lýs og flær). Þá er líka hægt að baða fuglinn uppúr vægri blöndu af volgu vatni og grænsápu ef mikið ber á fló eða lús á honum.En ef það er gert er mjög áríðandi að þurrka fuglinn vel á eftir og passa að honum verði ekki kalt. Einnig þarf að athuga hvort klærnar séu eðlilegar en þær eiga að slitna nóg til að haldast í góðu lagi ef fuglinn getur rótað nóg og hefur nógu grófan jarðveg til að róta í. Ef klær eru orðnar of langar eða bognar getur fuglinn orðið haltur og gengur ekki eðlilega og fer að sjá á honum. Þetta gerist ef of mjúkt er undir hjá fuglinum og hann kemst ekki í grófan jarðveg til að róta,hvorki inni eða úti. Fuglinum er eðlilegt að róta allan daginn,hann er stöðugt að leita eftir skordýrum og öðru til að éta ásamt því að búa til holur svo hann geti legið þar og baðað sig eða í þeim eða hvílt sig. Svo ef klærnar eru orðnar of langar og bognar þá þarf að stytta þær og klyppa.Takið því fuglinn upp og haldið honum að ykkur með annarri hendi og klippið klærnar í ca 1 cm.lengd með góðri og beittri töng. Passið að fara ekki of nálægt svo ekki blæði úr. Ef þið klippið of nálægt og það fer að blæða getur fuglinn orðið haltur fyrir utan að hann fær ekki frið fyrir hinum fuglunum. Takið hann því frá í nokkra daga á meðan þetta grær. Þó fuglinn sé slæmur í fiðri (mikið ber) þarf það ekki endilega að þýða að hann sé með lús eða fló. Hann getur verið að fara úr fiðri og það getur verið of heitt í húsinu. En gott er samt að athuga þetta svona við og við. Fuglinn gerir ekki miklar kröfur en aðbúnaður þarf að vera góður,bæði fyrir hirðirinn og fuglinn sjálfan. Þá líður öllum vel. Fugl sem er í góðu fiðri og með eðlilegar klær líður vel. Annað sem kemur að umhirðu á fuglinum er goggurinn. Á sumum fuglum vex goggurinn á víxl og getur þetta háð fuglinum að taka eðlilega til sín fæðu. Þá þarf að klippa gogginn til en fara verður mjög varlega að þessu svo ekki blæði úr. Hafið góða töng í hendinni,fáið einhvern til að halda á fuglinum fyrir ykkur ef það er hægt að koma því við og klippið framan af báðum endum á efri og neðri hluta goggsins,passið að taka ekki of mikið en helst að því svæði þar sem goggurinn byrjar að víxlast ef það er mögulegt. Þegar goggurinn svo vex aftur ætti hann að vaxa beinn. Goggurinn getur einnig vaxið þannig að efri hlutinn á honum vex framfyrir neðri hlutann (eins og á páfagaukum) og þarf þá að klippa framan af efri hluta goggsins .Beitið sömu aðferð og að ofan greinir með góðri töng og klippið þvert af gogginum þar sem hann byrjar að vaxa framfyrir neðri hlutann og bogna. En farið varlega og haldið fuglinum grafkjurrum meðan klippt er. Þegar vaxa fer framan á goggin á ný ætti hann að verða beinn. Sömu aðferð má beita ef einhver er í vandræðum með hænu sem étur egg. Sumar hænur taka uppá því að höggva í eggin þar til þau brotna og éta svo innan úr þeim. Erfitt getur verið að stoppa þetta af en gott ráð við þvi er að stytta fremsta hlutann á efri hlutanum á gogginum. Klippið þvert framan af efri hlutanum með beittri töng þannig að neðri hlutinn nái nokkra millimetra framfyrir þann efri. Ef þetta er klippt svona getur fuglinn ekki hoggið eggin og alls ekki brotið skurnina. Þegar goggurinn vex svo aftur ætti fuglinn að vera búinn að gleyma þessu framferði. Nú eða settja bara gólfkúlu eða hvítmálaðan stein í hreiðrið og hafa það í nokkrar daga. Hænan hættir að reyna a ðbrjóta þetta "egg" sem og önnur efiri nokkur högg.
Gangi ykkur vel.