Hér eru nýjustu fréttir frá Tjörn .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Átt þú til unga hænu/hænur?

Mig langar til að athuga hvort einhver sem les fréttirnar á þessari síðu eigi til og má missa unga hænu/hænur sem eru í varpi. Væri gott ef nokkrir gætu t.d. látið 1-2 hænur hver. Er að leita mér að svona 10-12 hænum í viðbót við þær sem ég þegar er komin með. Ef þið eigið fugl sem þið getið eða viljið láta þá endilega hafið samband við mig í síma 451-2271 eða í 861-3348. Það er líka hægt að senda mér tölvupóst á juliusb@simnet.is

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Endilega haldið áfram að hafa samband.

Vil bara minna fólk á að halda endilega áfram að hafa samband ef það er eitthvað sem vantar í sambandi við fuglana. Ef það er eitthvað sem þið viljið rabba um ,spyrja um,fræðast eða bara hvað sem er. Ég er alltaf eða oftast heima og alltaf tilbúinn til skrafs og ráðagerða sem og leiðbeina og aðstoða ef ég mögulega get.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hænunum fjölgar.

Sjálfar varphænurnar eru nú orðnar 27 talsins og fjölgaði um 10 fyrir rúmlega viku síðan. Von er á fjórum ungum hænum til viðbótar nú um helgina.Þetta eru hænur sem eru frá því að vera ársgamlar og uppí um þriggja ár gamlar og verpa allar vel.Flest egg út þeim hafa verið tekin í útungun en skipt um hana reglulega til að fá ekki eingöngu unga úr sömu fuglunum.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fyrstu ungarnir komnir.

Jæja þá eru fyrstu ungarnir komnir úr eggjum. Er með um 80 unga í uppeldi sem eru orðnir tveggja vikna gamlir og 58 ungar sem eru viku gamlir.Svo er von á ungum úr 120 eggjum um 6.september n.k. Það verður svo sett í eina 120 eggja vél nú á sunnudaginn og verður það líka jafnframt síðasta útungunin hér í ár. Allir þessir ungar fara svo í uppeldi og mynda nýjan Landnámshænsnastofn hér á bæ í framtíðinni. Að sjálfsögðu á þeim eftir að fækka eitthvað þar sem kyngreining er eftir en vonast er til að með þessum hollum sé komin sá fjöldi sem ætlunin er að hafa í framtíðinni. Allir þessir ungar ættu því að verða orðnir fallegar varphænur næsta vor ef allt gengur eftir. Hanafjöldin sem ætlunin er að vera með er komin og nokkrir aukahanar eru til fyrir þá sem vilja bæta nýju blóði í stofninn hjá sér.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fyrstu ungarnir að koma.

Jæja þá styttist í að fyrstu ungarnir eftir brunann skríði úr eggjum hér á Tjörn. Von er á ungum úr 120 eggjum nú á sunnudaginn kemur,síðan ungum úr 80 eggjum um næstu helgi og öðrum 80 eggjum eftir tvær vikur.Það var mögulegt að byrja á ný við útungun þar sem rafmagn var tengt nú nýlega í fjárhúsin sem hér eru og sluppu frá brunanum.Ég útbjó bráðabirða aðstöðu fyrir unga í húsunum og get nú verið með vélar og hitaperur í gangi þar.Megnið af þessum ungum fer svo í að mynda nýjan stofn hér á Tjörn en öll þessi egg sem sett voru í vélarnar eru úr fuglum sem eru héðan frá Tjörn.

Hænurnar eru orðnar 23 talsins og allar héðan en þær voru teknar af fólki sem ekki gat haldið hænur lengur vegna breyttra aðstæðna.....það má segja að þær séu komnar heim aftur:) Þá eru hér í uppeldi 75 kjúklingar sem eru orðnir tveggja og hálfs til þriggja mánaða gamlir en megnið af þessum ungum er gjöf(styrkur) vegna brunans og eru frá nokkrum einstaklingum víða um land.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Er að byrja smátt aftur.

Ég hef tekið þá ákvörðun að setja í vél nú um helgina (18.júlí) og koma ungar úr þeim eggjum fyrstu vikuna í ágúst. Þetta er smátt svona til að byrja með enda vantar enn rafmagn hér í þau útihús sem sluppu frá brunanum en þó er þetta alltaf byrjunin,maður sér svo til hvað kemur útúr þessu. Sett verða 120 egg í vél núna og önnur 100 egg í vél í næstu viku ef vel tekst til.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nú eru til útungunar egg!

Nú getur fólk fengið egg til útungunar hjá mér ef vantar. Eins og flestum er sjálfsagt kunnugt um er ég með nokkrar hænur og er að fá nokkur egg á dag og get því látið egg úr þeim til útungunar ef einhver vill.

 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fiðurtaka vegna erfðarannsóknar.

Nú stendur til að rannsaka erfðaefni Landnámshænunnar og kemur þá vonandi í ljós hversu hrein nú eða blönduð hún er. Til að hægt sé að fá sem gleggsta mynd af þessu er áríðandi að sem flestir er eiga fugla taki þátt í þessu verkefni og sendi inn sýni og gerið það sem fyrst.

Aðferð við sýnatöku:

Best er að tveir séu við þetta og annar haldi á fuglinum og breiði út annan vænginn. Hinn aðilinn tekur svo fjaðri undan vængnum ca.5 fjaðrir af hverjum fugli. Tekið er efst um fjöður stafinn með tveimur fingrum og kippt snögg úr. Passið að fjöðurstafurinn sé með og fastur við sjálfa fjöðrina(fanirnar) Setjið þessar fjaðri í poka og merkið.

Merkingin:

Setjið 5 fjaðrir af sama fuglinum í poka og númerið pokann....t.d. no:1,no:2,no:3 og svo framvegis.Munið svo hvaða fugl er númer hvað.Merkið pokann með nafni eiganda,heimilisfangi og nafn á hænunni má vel fylgja með en gleymið ekki að númera hvern poka fyrir sig.Gott er fyrir hvern og einn að skrifa niður hjá sér hvaða fugl er númer hvað og hafa nafnið hans með líka og geyma þetta svo hjá sér svo hægt sé að rekja niðurstöðurnar þegar þær berast.

Sýnin er svo hægt að senda til eftirfarandi aðila

Jóhönnu Harðardóttur Hlésey 301 Akranes

Júlíus Már Baldursson Tjörn Vatnsnesi 531 Hvammstangi

Valgerður Auðunsdóttir Húsatóftum 801 Selfoss

og verður sýnunum komið til skila í rannsóknina.

Endilega takið þátt í rannsókninni og sendið sýni.

 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Átt þú til unga eða ungar hænur?

Ef einhver á til unga sem hann getur látið þá væri ég til að á fá nokkra .Ég er búinn að útbúa mér til bráðabirða aðstöðu hér og hef því tök á að taka unga til mín á ný,unga sem ég ætla að ala upp og hafa með stofninum mínum sem fyrir er. Ef þú átt unga þá endilega hafðu samband við mig.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Er að byrja smátt aftur.

Ég hef tekið þá ákvörðun að setja í vél nú um helgina (18.júlí) og koma ungar úr þeim eggjum fyrstu vikuna í ágúst. Þetta er smátt svona til að byrja með enda vantar enn rafmagn hér í þau útihús sem sluppu frá brunanum en þó er þetta alltaf byrjunin,maður sér svo til hvða kemur útúr þessu. Sett verða 120 egg í vél núna og önnur 100 egg í vél í næstu viku.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nú eru til útungunar egg!

Nú getur fólk fengið egg til útungunar hjá mér ef vantar. Eins og flestum er sjálfsagt kunnugt um er ég með nokkrar hænur og er að fá nokkur egg á dag og get því látið egg úr þeim til útungunar

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

VB Landbúnaður styrkir Landnámshænuna.

Sverri hjá VB Landbúnaði hafði samband fyrir nokkru og færði þær fréttir að fyrirtækið hefði ákveðið að styrkja uppbyggingu að Tjörn vegna Landnámshænunnar og var sú ákvörðun tekin af fyrirtækinu að færa Landnámshænunni nýja útungunarvél að gjöf.Þetta er Maya vél frá Ítalíu sem fyrirtækið er nýfarið að flytja inn og tekur 100 egg í útungun.Vélin sér um að snúa eggjunum sjálf og er hönnuð þannig að mjög auðvelt er að sjá ofan í hana þar sem lokið á henni er glært plastgler.Þessi vél hentar því mjög vel á sýningar til að sýna unga skríða úr eggjum og sýna dagsgamla unga. Meiningin er að prófa vélina fljótlega.

Sverrir kom svo sjálfur fyrir nokkrum dögum að Tjörn í kaffi og spjall og afhenti vélina frá VB Landbúnaði.

Starfsfólki hjá VB Landbúnaði eru færðar innilegar þakkir fyrir höfðinglega og góða gjöf sem og fyrir stuðningin!

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nýjar fréttir frá Tjörn.

Framan af gekk allt frekar rólega hér vegna viðgerðar og uppbyggingar og sáust engir eða heyrðist ekki í neinum í 7 vikur eftir hlé í vor. Undanfarið hafa verið hér iðnaðarmenn í vinnu og gengið vel enda hörkuduglegir og vandvirkir.Búið er að hreinsa allt úr viðbyggingunni og var hún alveg gerð fokheld enda eina sem skilið var eftir af henni var grunnur,plata og útveggir....öllu öðru var mokað í burtu enda mikið brunnið og skemmt af sóti og vatni.Nú er komið nýtt þak,búið að setja lista utan ábygginguna fyrir einangrunarmottur og verður hún svo öll klædd að utan.Þá verða settir nýjir gluggar í hana alla. Búið er að steypa í gólfið,einangra hana og að mestu búið að klæða bygginguna að innan og verið er að klára það verk á næstu dögum,þá verður loftið klætt og nýtt rafmagn var lagt í bygginguna í gær og dag.Eftir er að skipta um gluggana og setja upp millivegginn á milli búrs/geymslu og andyris en sá veggur skiptir byggingunni í tvennt eftir endilöngu og svo verða gólf flísalögð. Bygginginn verður mikið breytt frá því sem var og verða t.d. tvö herbergi í henni núna en voru þrjú áður enda verður þetta má segja nýtt hús og fært í nútímalegra horf en var.

Byrjað er að laga rafmagnið í íbúðarhúsinu enda þarf að taka mikið af eldri lögnum í burtu og leggja nýjar.Nýr hitakúrur fyrir neysluvatnið hefur verið settur upp,skipt verður um nokkra ofna og verður lagt nýtt rafmagn í fjárhúsin á næstu dögum sem og í hænsankofann sem slapp frá brunanum og hanarnir voru í.

Sem sagt allt komið á góðan skrið núna og gengur hratt og vel fyrir sig.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Styrktartónleikar í Ásbyrgi á Laugabakka.

Haldnir voru í kvöld,laugardaginn 05 júní styrktartónleikar vegna brunans sem hér varð á Tjörn þann 28.mars sl. Það er alveg frábært að sjá og heyra hvað mikið er til af hæfileikaríku fólki með stórt og gott hjárta hér í Húnaþingi Vestra....tónleikarnir voru stórgóðir og virkilega skemmtilegir í alla staði svo ekki sé meira sagt. Mig langar til að senda innilegar þakklætis kveðjur til þeirra er stóðu að tónleikunum sem og þeirra er komu fram og bæði spiluðu og sungu.Ekki síst þakka ég öllum þeim er mættu og sýndu stuðning með nærveru sinni. Þetta var eitt það skemmtilegasta kvöld sem ég hef átt um langa hríð og verður ein af mínum betri minningum um alla framtíð.Maður er ekki einn þegar maður finnur fyrir svona stuðningi og samhug frá góðu fólki í heimahéraði. Hafið öll kæra þökk fyrir yndislegt kvöld og góða stund.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Súfistarnir færa gjöf.

Fyrir nokkrum árum síðan hafði samband við mig Bjarni Ásgeirsson hrl.úr Hafnarfirði en Bjarni hafði heyrt viðtal við mig í útvarpinu um íslensku Landnámshænuna og vakti þetta viðtal áhuga hans.Bjarni ásamt nokkrum öðrum góðum mönnum hittast reglulega í kaffi og spjalli á kaffihúsinu Súfistanum í Hafnarfirði og leysa í sameiningu bæði heims og landsmálin:) Þessa "grúppu" hef ég kallað "Súfistana"og hafa þeir komið hingað að Tjörn í heimsókn í kaffi,mat og spjall og hafa fylgst vel með ræktuninni. Gott og mikið samband hefur verið á milli okkar í langan tíma. Þessir menn tóku sig til eftir brunann nú vor og færðu Landnámshænunni að gjöf nýja útungunarvél. Vélin er ein sú fullkomasta sem til er á markaðinum í dag frá Brinse í Bretlandi,alsjálfvirk(sér sjálf um hitastig,snúning og rakastig)og tekur 200 egg í útungun. Það verður gaman að prófa vélina þegar aðstæður leifa.

"Súfistunum" er færðar innilega þakkir fyrir þessa höfðinglegu og góðu gjöf !

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Maí 2010

Jæja þá er maður komin með nokkrar hænur.....svona sýnishorn má segja. Ég lagaði til bráðabirða til í kofanum hér sem slapp frá brunanum og hanarnir voru í ,setti spænir á gólfið og nýja glugga í hann. Tók svo að mér 14 fallegar hænur frá þremur einstaklingum sem ekki gátu haft þær lengur. Týmdi ekki að láta farga þeim enda flestar ungar og afskaplega fallegar. Svo nú ofdekrar maður og dúllar sér við þær á morgnana og maður er farinn að fá egg á nýjan leik á hverjum degi:).

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Maí 2010.

Séu einhverjir að spá í að fá sér unga nú í vor eða sumar er velkomið að hafa samband og panta hér hjá mér.Ég kem því þá áleiðis til þeirra sem eru að unga út og pantanir verða afgreiddareins fljótt og hægt er..

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Byrjun maí 2010.

Þá er búið að hreinsa brunarústirnar, aka öllu í burtu og setja möl yfir svæðið þar sem útihúsin stóðu áður.

Búið er að hreinsa allt útúr tengibyggingunni og var hún gerð fokheld.Allir milliveggir,hurðir,gluggar og það sem eftir var af þakinu var tekið í burtu.

Búið er að setja nýja sperrur á húsið og nýja súð.Þetta er farið að þokast áfram núna og vonandi verður framhald á.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ástandið á Tjörn í dag !

Ástandið á heimilinu má segja að sé ekki gott og oft hefur það verið betra en nú er. Það er á mörkunum að hægt sé að búa í íbúðarhúsinu eins og það er í dag en maður lætur sig hafa það en auðvitað er margt sem þarf að gera eftir svona atburð eins og brunann sem varð hér.

Það þarf að ljúka hreinsunar starfinu og lýkur því vonandi í vikunni. Rífa þarf það sem ekki brann í tengibyggingunni og byggja uppá nýtt. Það þarf að setja nýtt þak á bygginguna,nýja glugga og gler,laga gólf og nýjar hurðir.Þá þarf að leggja nýtt rafmagn þar og einangra og klæða alla bygginguna alla að utan.

Íbúðarhúsið skemmdist mikið af vatni ,sóti og reyk ásamt því að eldurinn komst í hornið á þakinu er snýr að tengibyggingunni. það þarf að skipta um hluta af þakinu á því,þakglugga(2) sem og glugga í risinu (4). Þrífa þarf allt húsið fyrst og mála uppá nýtt frá kjallara og uppí ris.Skipta þarf um útidyr sem eru 3 og 5 innihurðir.Þá þarf að skipta um vatnslagnir að hluta og legga nýtt rafmagn í allt húsið en hér er bara bráðbirgða rafmagn í dag.Leggja þarf nýja rafmagnstaug að húsinu sem og að fjárhúsunum en þau eru hér ofar en hinar byggingarnar voru en heimtauginn þar brann í sundur sem og heimtaugin í íbúðarhúsið.Þá þarf að laga eða skipta um eldhúsinnréttingu vegna vatnsskemmdaog skipta um öll gólfefni á neðri hæð.Pakka þarf niður megninu af búslóðinni svo hún sé ekki fyrir iðnaðarmönnunum og verður hún sett í stóran geymslugám sem er kominn hingað heim á hlað.Svo það er af nógu að taka og nóg að gera framundan.

Þegar þessu verður lokið verður tekin ákvörðun um framhaldið og uppbyggingu en nóg er að hugsa um þetta í bili og klára þetta verkefni fyrst.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Bruninn!

Það sem fór í brunanum hér þann 28.marsl sl. var eftirfarandi.

Hlaða,fjós,haughús,geymsla og tvöfaldur bílskúr brunnu til grunna með öllu sem í því var.Eignatjón hleypur á tugum milljóna en ekkert bætir Landnámshænustofninn sjálfan eða kisurnar sem brunnu inni. Hér brunnu rúml.200 hænur,25 hanar,147 tæplega 6 vikna gamlir ungar,4 kisur og 970 egg í útungunarvélum sem voru við að klekjast út innan þriggja daga. Allur búnaður,vélar og fl.er tilheyrði fuglum brann einnig.Þá fóru öll handverkfæri,rafmagnsverkfæri,garðhúsgögn,allt er viðkemur garðrækt og það sem tilheyrði matjurtagarðinum,ker,pottar,slöngur,styttur,vélar,áhöld og fl.sem og flest það sem fólk geymir venjulega í geymslum hjá sér.

Tjónið hér nemur tugum milljóna króna en ekkert bætir fuglana eða kisurnar.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fréttir frá Tjörn.

Nú er rannsókn á brunanum lokið,tryggingasérfræðingar búnir að meta tjónið að mestu og nefnd frá Ráðuneytinu búinn að skoða aðstæður svo nú er hægt að halda áfram og ljúka hreinsunarstarfinu og hefja uppbyggingu. Það verður mikill léttir að losna við að horfa uppá alla þessa eyðileggingu sem hér varð alla daga og vonandi tekur viðgerð ekki langan tíma..

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Innilegar Þakkir !

Kæru Landnámshænu eigendur og aðrir velunnarar !

Innilega þakkir til ykkar fjölmörgu sem sent hafið samúðarkveðjur til mín með SMS skilaboðum,hringingum,kortum og tölvupóstum vegna brunans er varð hér hjá mér þann 28.mars sl.

AÐ fá alla þessa samúð og fallegar kveðjur ásamt hvatningu um að halda áfram frá ykkur herðir mann og styrkir á erfiðum tímum og hvetur mann til að halda áfram en það ætla ég einmitt að gera.

Kveðjurnar frá ykkur skipta orðið hundruðum sem hingað hafa borist og mér er orða vant.

Nú er bara að horfa fram á veg,líta björtum augum á framtíðina og halda áfram að rækta Landnámshænuna.

Enn og aftur......Innilegar og kærar þakkir!

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Tilkynning!

Eins og flestum er kunnugt um þá gerðist sá hörmulegi atburður hér að Tjörn aðfaranótt 28.mars sl.að útihúsin hér á bænum brunnu til grunna í miklum eldsvoða og brann inni allur stofn Landnámshænunnar sem hér var,ásamt öllum búnaði er tilheyrði fuglunum.Reksturinn liggur því niðri um óákveðin tíma en nánari fréttir vera settar hér inn um leið og eitthvað breytist,ásamt fréttum af framhaldinu.

Vegna þessa ástands og aðstæðna sem hér eru á þessari stundu eru engin egg til né ungar og verður ekki á næstu vikum allavega.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Mars 2010.

Vegna bilunar í tölvunni hjá mér hef ég ekki getað komist inná heimasíðuna í um mánuð til að skrifa fréttir og er beðist velvirðingar á því en nú er þetta sem betur fer komið í lag.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Febrúar 2010.

Búið er að bæta við nýjum upplýsingum og greinum á heimasíðuna og eru þær undir tenglunum"uppskriftir", "Hænan og haninn",einnig hefur verið uppfært undir tenglinum "Sala og verð" en smá hækkun verður á þessu ári þar sem allt hefur hækkað er viðkemur fuglunum,bæði fóður,bensín,ílát og fl.og jú bara allir aðdrættir hafa hækkað eins og fólki er sjálfsagt vel kunnugt um.

Skoðið sérstaklega upplýsingar um "Hegðun hanans" og "Illir hanar" .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Margar heimsóknir á síðuna.

Heimsóknirnar eru orðnar rúmlega 13.700 talsins á heimasíðuna frá upphafi og hafa verið rúml.600 heimsóknir á sl.tveimur mánuðum.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Febrúar 2010.

Jæja þá er búið að setja hanana saman við hjá hænunum og gengur mikið á í húsinu þessa dagana. Nú þarf að berjast fyrir virðingarsæti sínu,goggunarröðin í algleymi og það þarf að sinna hænunum. Þetta fer svo að róast þegar frá líður en tekur svona um tvær vikur að komast í samt lag og var.Byrjað verður að safna í fyrstu vélarnar nú um næstu mánaðarmót og eiga fyrstu ungar að koma í kringum 20.mars. Stefnt er að því að páskaungarnir í ár komi fimmtudaginn 1.apríl á Skírdag.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Takmarkinu var náð !

Í lok október vantaði rúml.380 innlit á heimasíðuna til að ná 12000 heimsóknum fyrir áramót og fannst mér það nokkur bjartsýni að þeim áfanga yrði náð en viti menn,þann 22.desember sl.náðist þetta og teljarinn sýndi töluna 12000 þegar ég fór inná síðuna um kaffileytið til að setja inn jólakveðjuna til ykkar. Frábær árangur finnst mér að ná þessu á ekki lengri tíma með svona afmarkað efni og ekki svo stóran áhugamanna hóp. Hafið öll kæra þökk fyrir heimsóknirnar og ég vona að heimasíðan geti hjálpað ykkur eitthvað í því er varðar fuglana og að þið hafið sem best og mest not og gang af henni.

Þetta er því má segja frábær árangur finnst mér.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Viltu leigja jörð?

Hefur þú eða veistu um einhvern sem vill eða getur leigt jörð eða húsnæði með útihúsum utan þéttbýlis sem hentar Landnámshænunni? Það þarf hvorki haga né tún en smá svæði umhverfis húsin svo fuglarnir geti verið úti við.Það þarf aðeins íbúðarhús og útihús sem þurfa ekki að vera stór.....t.d. eldra fjós og hlöðu,fjárhús og hlöðu eða stóra skemmu sem hentar fyrir Landnámshænuna ,uppeldi og útungun. Þú færð góðan og traustan leigjanda sem er þrifinn,snyrtilegur og gengur mjög vel um bæði úti og inni. Mjög gott væri að þessi aðstaða væri rétt við eða stutt frá þjóðvegi 1 til að auðvelda heimsóknir og skoðun og fyrir sunnan Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en ekkert skilyrði þó. Allt verður skoðað og allt kemur vel til greina. Endilega láttu vita á juliusb@simnet.is og í 451-2271 eða 861-3348.

Fullum trúnaði heitið sé þess óskað .

 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Nóvember 2009.

Vegna mikilla fyrirspurna undanfarið um vítamín og steinefna blönduna sem ég gef fuglunum yfir vetrarmánuðina þá er ég búinn að umreikna magnið og setja upplýsingar um þetta inná heimasíðuna.Undir tenglinum "uppeldi og fóðrun" er hægt að lesa sér til um þessa blöndu sem ég gef fuglunum ..Uppskriftin sem þar er gefin upp er miðuð við að fólk hafi um 10 fugla .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nóvember 2009.

Þá er búið að þrífa allar útungunarvélarnar og eru þær nú komnar í hvíld fram á vor. Búið er að fækka hönum eins og til stóð og taka frá aðra sem koma til með að leysa þá gömlu af næst vor.Þeir hanar sem settir voru á í haust eru nú í sér húsi svo nú er allt rólegra hjá hænunum frá því sem áður var. Eldri hanarnir sem eftir voru eru enn hjá hænunum en verða teknir frá þeim um næstu helgi og verða þær hanalausar með öllu í vetur eins og venjulega.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nóvember 2009.

Jæja þá er aðalfundinum lokið og var þetta hinn ágætasti fundur. Tekið var á ýmsum málum,þau rædd og fundnar lausnir. Árgjaldið var hækkað sem var kominn tími á að gera svo félagið geti haldið áfram úti öflugu starfi og gefið út blaðið eins verið hefur .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

.Nóvember 2009.

Er nú farin að gefa hænunum bætiefni og vítamín fyrir veturinn. Það er nauðsynlegt fyrir þær að fá auka bætiefni þar sem þær hafa frekar lítið úti við nú orðið. Skordýr eru lögst í dvala eða farin og gróður allur fallinn svo þær geta víst lítið gert annað en að viðra sig þegar þær eru úti. Þá er gott að bæta þeim þetta upp með aukaefnum og vítamínum svo þær skorti örugglega ekki neitt.

Hænurnar hafa alltaf frjálsan aðgang í varpfóður, ferskt vatn og skeljasand. Á veturnar bý ég til eftirfarandi blöndu handa þeim. 2 hlutar bygg,1 hluti maískurl,2 hlutar varpfóður og útí þetta set ég lýsi og tvo hnefa af fiskimjöli,ég blanda þessu vel saman og legg þetta í bleyti yfir nótt svo það verði eins og þykkur hafragrautur og gef þetta í sérstök trog á morgnana sem eru hjá þeim. Útí vatnið hjá þeim set ég B vítamín sem ég hef leyst upp í vatni.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Október 2009.

Jæja það er skammt stórra högga á milli hjá manni þessa dagana má segja. Droplaug gamla féll frá sl.nótt og Irja mín í fyrrinótt en Droplaug náði 14 ára aldri um miðjan september sl. og var hún talin ein af eða með elstu landnámshænum landsins. Hún lá bara eins og hún væri sofandi í einu af varphólfunum þegar ég kom út í morgun til gegninga. Droplaug fór og tók þátt í mörgum sýningum víða um land í gegnum tíðina og vakti alltaf mikla hrifningu fyrir hve falleg hún var og róleg þar sem hún var í búrinu sínu,hún var nú farinn að fella af og láta á sjá undir það síðasta blessunin sem vonlegt er. Hennar verður mjög sárt saknað hér á heimilinu blessaðri en svona er þetta bara,þær verða víst oftast ekki mjög gamlar þessar elskur og má maður þakka fyrir að sumar nái þó þetta háum aldri.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Október 2009.

Ég gaf loforð um það fyrr í haust að koma með nýklakta unga á öldrunardeild sjúkrahússins á Hvammstanga svo gamla fólkið gæti séð þá og rifjað upp gamlar minningar frá æskuheimilinu sínu í sveitinni. Þetta loforð var efnt í dag og fór ég með 10 unga með mér og hafði þá þar í um 2 tíma. Þetta vakti mikla lukku hjá gamla fólkinu og miklar umræður....skemmtilegt þegar maður getur látið eitthvað gott af sér leiða.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Október 2009..

Irja sem var ein fallegasta hænan í hópnum og er sú sem flest verðlaun hefur fengið á sýningum undanfarin ár, sofnaði svefninum langa sl.nótt 8 ára gömul.,Hennar er og verður sárt saknað úr hópnum. Þessi hæna hefur alla tíð verp afskaplega vel,var alltaf svo falleg í fiðri, fyrir utan hvað hún var sérkennilega og falleg á litin. Sjá má myndir af henni í sumum af Landnámshænsna blöðunum sem komið hafa út síðastliðin ár.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Október 2009.

Fyrir þá sem misstu af síðast!

Nú í lok mánaðarins er hægt að fá góðan áburð ef einhvern vantar. Þetta eru þurrar spænir sem eru blandaðar hænsnaskít,létt,þurr og kröftugur áburður.Kjörin á allan gróður og í matjurtagarðinn. Þrifalegt og létt verk að bera á. Hafið samband sem fyrst.

Athugið! ....takmarkað magn !

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Október 2009.

Eins og oft hefur komið fram áður er heimasíðan sífellt í vinnslu og alltaf bætt við þegar tími gefst til þess enda eru verkefnin að því virðist ótæmandi þegar kemur að fuglunum. Nú hefur mörgu nýju verið bætt við og má sjá það meðal annars undir tenglunum vinstra megin á síðunni sem heita "Aðbúnaður fuglanna" , "Egg og útungun" , "Uppeldi og fóðrun" og "Hænan og haninn". Vona ég að þetta komi einhverjum sem er með hænur að góðum notum í framtíðinni .Endilega kíkið á tenglana.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Október 2009.

Fréttaskotið á RUV þann 13.okt.sl.vakti mikla lukku og athygli eftir viðbrögðunum að dæma sem ég hef fengið frá fólki undanfarna daga. Viðtalið var flutt í heild sinni á Útvarp Norðurlands þann 12.okt.sl.um kvöldið og á Rás I í þættinum "Samfélagið í nærmynd" þann 13.okt.sl en sá þáttur er á dagskrá kl.11.03 . Viðtal og myndir komu svo í seinni fréttatíma RUV um kvöldið þann 13.okt. Hægt er að heyra og sjá þessar fréttir og hlusta á viðtalið í heild sinni ef farið er á heimasíðu RUV á RUV.is og fletta upp dagskrá eftir dagatalinu sem birtist hægra megin á síðunni.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Vantar þig góðan áburð ?

Nú stendur yfir hreinsun í hænsnahúsinu og leggst mikið til að spónum sem eru blandaðar driti úr hænunum. Þetta er þurrt og afskaplega létt og auðvelt að bera á. Spænirnar eru jú hrein náttúru afurð og hænsnadrit er sá besti áburður sem hægt er að fá og hugsa sér og hentar mjög vel á allan gróður eins og t.d.tré,runna,blómabeð og ekki hvað síst í matjurtagarðinn .

Vöxtur plantnanna verður kröftugur og mikill og matjurtagarðurinn skilar þér met uppskeru. Þetta hef ég eingöngu notað í garðana og í alla ræktun hjá mér í mörg ár og má til gamans geta þess að kartöfluuppskeran hér sl.ár var um 200 kg en sett voru niður 12 kg af útsæði. Haustið og vorin eru besti tíminn til að bera þetta á og best er að róta til aðeins með hrífu eða arfaklóru í blóma og trjábeðum þegar búið er að setja spænirnar á beðin. Best er að hella þessu beint í matjurtabeðin þegar búið er að taka upp og pæla þetta saman við moldina fyrir veturinn,sama er gert ef sett er í beðin að vori til . Bara setja spænirnar í beðin og stinga svo upp garðinn og blandast þetta þá vel saman við. Moldin verður léttari í sér,loftar betur um hana,auðvelt er að vinna hana og hún mildast vel,mikil myndun er af möðkum sem gera gott og mikið gagn í moldinni sem og plöntur vaxa og dafna mjög vel af þessu enda mjög næringaríkt.Spænirnar og dritið verður svo aftur að mold með tímanum.

Ég set þetta í margfalda 40 kg bréfpoka undan fóðri (léttari í kílóum með dritspónum) en fullur svona poki kostar 1200 kr. Ég er svo á ferðinni héðan frá Tjörn til Reykjavíkur um hver mánaðarmót svo ekkert mál er að taka með sér poka af svona áburði ef fólk í Reykjavík hefur áhuga á þessu nú eða einhversstaðar á leiðinni eins og t.d. Akranesi eða Borgarnesi og víða. Þetta er þurrt og létt og auðvelt að fara með þetta.

Ef þú hefur áhuga á vistvænum og kröftugum áburði á plönturnar þínar þá hafðu samband í síma 451-2271 eða með tölvupósti á juliusb@simnet.is

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

September 2009.

Nú hefur verið opnuð ný heimasíða fyrir félagið og er slóðin á hana sú sama og var áður www.haena.is endilega kíkið inn á síðuna og skoðið.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

September 2009.

Það er gaman að sjá hvað síðan kemur að góðum notum og hvað fólk er duglegt að fletta henni upp til að skoða og sækja sér fróðleik og ábendingar um fuglana. Flettingar eru komnar yfir 10 þúsund talsins og kvetur þetta mann til að halda áfram og reyna að gera vel og enn betur. Ég vil einnig kvetja fólk til að vera ófeimið að hafa samband ef það hefur einhverjar fyrirspurnir og ekki skemmir heldur fyrir ef það hefur einhverjar ábendingar eða góð ráð vegna fuglanna sem það vill deila með öðrum .það er sama hvaðan gott kemur.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ágúst 2009.

Þá er Landbúnaðarsýningunni Glæta 2009 í Borgarnesi lokið. Mikið var af gestum,alskonar uppákomur voru í boði og fór sýningin í alla staði mjög vel og skemmtilega fram. Ég sýndi þarna mikið úrval af hænum,hönum,kjúklingum og unghönum og eins og áður var hægt að sjá unga skríða úr eggjum yfir helgina. Mjög margt fólk stoppaði við til að skoða ungana og útungunina sem og til að spjalla og forvitnast um fuglana. Kosið var um fallegustu hænuna og fallegasta hanann á sýningunni og voru hlutskörpust þau Irja og Grámann en þau fengu flest atkvæðin sem veitt voru af sýningargestum og fengu lang flest atkvæðin.

Mig langar til að þakka SIggu,Inga,Ámunda,Simba og öllum hinum sem að sýningunni stóðu fyrir mig og fuglana. Það var virkilega gaman að kynnast þessu fólki öllu og starfa með því enda var jákvæðnin og gott skap sem fylgdi því alla dagana á meðan á undirbúnnigi stóð sem og alla sýningardagana .Hafið kæra þökk fyrir mig og fuglana.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

28.júlí 2009.

Búið er að afhenda uppí allar pantanir úr því holli sem tilbúið var og er það holl allt uppselt.

Ungar skriðu úr eggjum í gær og í dag og er útungun úr þessu holli því lokið. Þessir ungar fara nú í uppeldi og verða tilbúnir seinnipartinn í september. Meiri hlutinn af þessum ungum er nú þegar pantaður. Sett verður aftur í vélar nú eftir helgina og koma ungar í þeim eggjum í lok ágúst. Þeir sem áhuga hafa á að fá unga fyrir veturinn ættu að athuga með að leggja inn pöntun sem fyrst .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júlí 2009.

Að Laugabakka í Miðfirði hefur verið starfræktur Sveitamarkaður um helgar nú í sumar og verður þessi markaður fram eftri ágústmánuði allavega. Nú um helgina verð ég með Landnámshænuna til sýnis á markaðnum og mun ég hafa fuglana frjálsa í stóru búri á svæðinuen ekki í sýningarbúrunum.Þetta sama búr var notað í Borgarnesi á Landnámshátíðinn fyrr í sumar. Búrið sem ég nota er um 180 cm hátt og 3 x 6 metrar að ummáli. Þarna verður hægt að skoða bæði hænur og hana og kaupa egg ef fólk vill.

______________________________________________________________________________

Tilkynning !

Að gefnu tilefni vil ég ítreka það að heimasíminn hjá mér er 451-2271 eins og fram kemur á forsíðunni og er þetta númer einnig skráð í símaskránni og hjá 118. Bæði er ég persónulega skráður á þessu númeri,Tjörn og Landnámshænan. Einhverra hluta vegna hefur fólk fengið samband við einhvern á Hvanneyri þegar það hefur ætlað að hringja í mig og er sennilegasta skýringin sú að valið er röng tala,sennilega sú síðasta í númerinu. Viðkomandi aðili á Hvanneyri er beðinn velvirðingar á þessu ónæði en hann hefur víst oft fengið símtal sem átti að fara hingað vegna Landnámshænunnar ....... :)

Munið 451-2271 og 861-3348

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júní 2009.

Þá er Landnámssýningunni í Borgarnesi lokið og tókst hún í alla staði vel.Þarna var margt um að vera og margt sem sýnt var frá Landnámi,leikir,dans,bardagar og fl.Tískusýning á vikingaklæðum,sagðar sögur,farið með rímur og margt annað.Lifandi og skemmtilega hátíð og lék veðrið við gestina.Ég setti upp stórt búr og hafði 9 hænur og 2 hana til sýnis og voru fuglarnir lausir í búrinu á meðan hátíðin fór fram. Fjöldi gesta var þarna og var mikil aðsókn í að skoða og spjalla um Landnámshænuna.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júní 2009.

Laugardaginn 27.júní n.k.verð ég með hænur og hana á sýningu í Borgarnesi en þessi sýning er haldin af Landnámssetrinu þar í bæ. Og hvar á Landnámshænan betur heima en á Landnámssýningu? Þessi sýning er tileinkuð Brák og verður eins og áður kom fram í Borgarnesi á morgun þann 27.júní og hefst kl 14 og stendur fram eftir degi. Ég verð þar að sjálfsögðu til skrafs ef einhverjir vilja og væri gaman að sjá sem flesta þar.

Einnig vil ég minna á sýningu á vegum félagsins í Húsdýragarðinum í Reykjavík sama dag. Það hefði verið gaman að vera þar en maður getur víst ekki verið á tveimur stöðum í einu.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júní 2009.

Hingað hefur komið mikið af gestum undanfarna daga til að skoða enda vakti viðtalið í útvarpinu mikla eftirtekt og lukku.Einnig hafa verið teknar þó nokkrar fósturhænur eftir þetta viðtal enda finnst fólki þetta sniðug gjöf og góðir möguleikar á að eignast íslenska Landnámshænu. Mig langar til að þakka öllum þeim er hingað hafa komið sem og þeim er hafa tekið hænu í fóstur og þar með styrkt við ræktun og viðhald á Landnámshænunni.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júní 2009.

Mig langar bara til að þakka þeim fjölmörgu sem bæði hafa sent mér tölvupósta eða hringt í mig og þakkað mér fyrir viðtalið í þættinum Samfélagið í nærmynd á Rás 1 í gærmorgun. Það kom mér virkilega á óvart hversu margir hlustuðu á þáttinn og höfðu gagn og gaman af. Hafið kæra þökk fyrir "commentin" og góðar undirtektir ásamt öllu þakklætinu sem þið senduð mér í öllum þessum póstum og símtölum. Þetta gladdi mig mikið.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Jjúní 2009.

Viðtal á Rás 1 á RUV 15.júní n.k.

Fyrir þau ykkar sem lesið fréttapistlana mína hér langar mig til að benda á að á mánudaginn kemur þann 15.júní verður viðtal við mig í þættinum "Samfélagið í nærmynd" en sá þáttur er á RUV rás 1 og hefst kl 11. Svo ef þið hafið áhuga á að hlusta þá endilega stillið á rás 1 á mánudaginn kemur kl 11 fyrir hádegi.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Júní 2009.

Afskaplega rólegt veður hefur verið hér undanfarna daga,hlýtt og andvari eða gola þó alskýjað hafi verið en hér hefur ekkert rignt lengi og allt því orðið mjög þurrt. Fuglarnir njóta þess til hins ýtrasta að vera útivið og róta mikið og baða sig. Þeir hópast út eldsnemma á morgnana og fara ekki inn fyrr en seint á kvöldin enda mikið að gera allan daginn hjá þeim.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Maí 2009.

Hér er búið að vera hvasst og kalt sl.fjóra daga,þoka í tvo daga en sól í tvo,kalt og hvasst. Hitastigið hefur ekki farið nema í um 8 gráður að degi til og niður í frostmark sl.tvær nætur.Alveg dæmigert vorveður hér um slóðir,allt fer vel af stað í byrjun en svo snýst hann í norðan eða norðaustan áttir og kólnar,hvessir og helst þurr.Kaldur þurrkur fer illa með allan gróðurinn,gróður fer til baka og allur gróandi tefst mikið. Þetta hefur seinkað gróðrinum og sumarkomunni hér allt upp í 4 vikur sum árin.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Maí 2009.

Jæja ekki var nú að spyrja að því,enn eitt áhlaupið að norðan hér og gerði alhvíta jörð en tók sem betur fer fljótt upp aftur. Setti nýjar spænir hjá fuglunum í gær og nýtt í varphólfin í dag.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Maí.2009.

Vorverkin eru hafinn hjá manni og vonandi helst þessi tíð eitthvað áfram.Hér er búið að vera rólegt veður undanfarið og allur snjór óðum að hverfa enda miklir skaflar hér eftri síðast norðan áhlaup. Allir vorfuglarinir eru komnir nema Krían en hún kemur alltaf síðust hér og sést oftast um eða í kringum 11.maí ár hvert.Hænurnar alltaf úti fram á kvöld og una sér vel,það eina sem vantar er að það þorni betur um svo þær geti baðað sig í jarðveginum.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

April 2009.

jæja þá er uppfærslu síðunnar lokið eins og minnst var á að stæði yfir. Nú er allt lesmál orðið aðgengilegra,búið að setja inn nýtt og skýrara letur og kaflaskipta allri umfjölluninni upp.Hver kafli hefur nú sitt heiti og er hann merktur með stærra letri og í öðrum lit en efnið sem fjallað er um.Vonandi er heimasíðan aðgengilegri,auðlesnari og auðveldari fyrir bragðið. Heilmikið nýtt efni er komið inná marga tenglana fólki til gagns,gamans og upplýsinga .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Apríl 2009.

Eins og fram hefur komið hef ég unnið að smá breytingum á heimasíðunni og vonast ég til þess að það mælist vel fyrir og geri alla notkun og flettingar á henni auðveldari fyrir fólk en áður var. Einnig er komið inn mikið af nýju efni og upplýsingum inná suma tenglana og má t.d. nefna um hegðun hananna,hvort setja megi nýja hana saman við þá sem fyrir eru og hvernig bregðast skuli við því og hvernig unga á út í vélum. Búið er að fara yfir flesta tenglana og verður þessu lokið nú um helgina vonandi.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Apríl 2009.

Undanfarið hef ég unnið að því með öðrum verkum að uppfæra heimasíðuna og kafla skipta upp efninu sem fjallað er um á hverri síðu fyrir sig .Er þetta gert til að síðan sé aðgengilegri og auðveldari í notkun. Fólk sem er að leita sér að upplýsingum um eitthvað sértakt efni getur því nú farið beint inná viðkomandi efnisumfjöllun og sótt upplýsingarnar í stað þess að þurfa að lesa niður alla síðuna eins og áður var. Þetta ætti því að auðvelda og flýta fyrir allri notkun á heimasíðunni frá þvi sem var. Efnisumfjöllun á hverri síðu fyrir sig er því nú kaflaskipt og fær hver kafli sitt heiti í samræmi við umfjöllun hans. Efst við hvern kafla á hverri síðu kemur því heiti hans og er það bæði í stærra letri og öðrum lit en letrið sem fjallar um viðkomandi efni. Það ætti að auðvelda fólki að finna viðkomandi efni strax.

Vonast ég til þess að þessi breyting mælist vel fyrir og komi fólki að góðum notum á heimasíðunni í framtíðinni .

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Apríl 2009.

Jæja vonandi er vorið að fara að láta sjá sig hér á norðurslóðum,búið að vera hvasst og kalt undanfarið og slydda eða snjókoma til skiptis. Flatlendi er orðið autt en mikið af sköflum ennþá sem og allir skurðir og lægðir full af snjó. Hrafninn kominn með unga og í dag sáust fyrstu gæsa og álfta hóparnir fljúga yfir. Lóan birtist svo í hópum hér í morgun og er búinn að syngja hér í allan dag .Þrestirnir komu fyrir rúml.viku síðan og eru farnir að undirbúa hreiðurgerð í ár. Svo spáir breyttum áttum núna og hlýnandi.....fer úr þrálátum norðanáttum í sunnanáttir og á að hlýna mikið og létta til ............jú er ekki vorið bara komið?...vonandi.Hænurnar eru búnar að vera duglega að vera úti undanfarið þrátt fyrir nepjuna og eru farnar að róta mikið og finna ýmiskonar skordýr enda vakna fljótt flugur og ormar þegar hlýnar í veðri og birtir til .Það þyrfti bara að þorna svolítið betur um svo hænurnar gætu farið að baða sig úti við.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Apríl 2009.

Tíðin hefur verið ágæt undanfarið,mikið af snjónum er farið og búið að vera ágætis þíða að degi til en um frostmark á næturnar.Enn er þó nokkuð eftir af sköflunum sem komu í síðasta áhlaupi,skurðir og gil eru enn full af snjó en láglendi að mestu orðið autt.Fyrstu vorboðarnir komu þann 04.apríl sl.en þá birtust hér tvenn þrastarhjón,má segja að vorið hafi komið þann dag eða allavega byrjað þá því hér var gola,heiðskýrt og sól,hiti fór hér í 23 gráður á móti sól en í 13 gráður í forsælu.Vonandi verður framhald á þíó spár segi manni að þetta sé ekki allt búið enn. Og nú bíður maður bara eftir því að lóan láti heyra í sér en hún er hér venjulega 10-11 apríl ár hvert. Mokað var út hjá fuglunum um helgina,skipt var um spænir á gólfum og ílát þrifinn upp.Svokölluð vorhreingerning enda þurrt,bjart og vistlegt hjá þeim núna .Fuglarnir hafa svo notið sín vel undanfarna daga að vera úti mest allan daginn enda búið að vera rólegt, stillt og þurrt veður í nokkra daga þó enn sé frekar blautt um.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Mars.2009.

Það virðist ætla að fara vel af stað þetta árið fyrir Landnámshænuna og margir bæði að endurnýja hjá sér eldri fugla og enn fleiri að taka fugla í fyrsta skiptið. Mikið er búið að panta fyrirfram eða aldrei eins mikið og nú og vona ég svo sannarlega að þetta ár verði gott ár á kynningu og dreyfingu á íslensku Landnámshænunni. Mjög gott væri ef fólk er að hugsa um að fá sér fugla að panta þá fyrirfram svo ég viti hvað þarf mikið uppí pantanir. Fuglana er hægt að taka á þeim aldri sem fólk kýs sér og hvenær sem er ársins,bara að ég viti hvað þetta verður mikið sem þarf að eiga svona ca.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Febrúar 2009.

Þá eru hanarnir komnir saman við hópinn aftur eftir hlé í vetur. Setti þá í hænsnahúsið í þremur hollum (8 stk á dag í þrjá daga) til að leyfa þeim að venjast breytingunni og ekki síst hænanna vegna þar sem valdbaráttan fer á fullt hjá þeim þegar þeir koma svona saman við aftur eftir langt hlé og þær verða bæði hræddar og æstar vegna þessara láta.

.Mikið áreiti og mikið flogist á þessa dagana en er farið að róast aðeins núna.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Janúar 2009.

Í dag 16.janúar eru nákvæmlega 2 ár síðan teljarinn var settur upp á heimasíðuna en síðan sjálf er tveggja ára síðan 16.ágúst sl. Það hefur glatt mig virkilega mikið hvað fólk virðist kíkja oft hér inn á síðuna og vonandi hafið þið getað notfært ykkur upplýsingarnar sem hér eru og verða.

Við verðum að athuga hvað þetta er í raun og veru lítill hópur sem hefur áhuga á þessu málefni sem er að halda og rækta Landnámshænuna og einnig hvað heimasíðan takmarkast við eitt málefni sem ekki mikill fjöldi sýnir áhuga og skilning á. Því tel ég þetta mjög gott.

Að vera búinn að fá 6.300 heimsóknir á tveimur árum er bara virkilega gott finnst mér og ég er mjög sáttur við það. Vona ég að heimasíðan og upplýsingarnar á henni komi að góðum notum og að svo verði áfram um ókomna tíð.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nóvember 2008.

Langaði til að setja hér inn að gamni mínu grófreiknaðar upplýsingar fyrir þá sem vilja og þurfa á að halda hvernig verð á unghænu myndast og sýnir þetta fólki svona nokkurnvegin hvað einn fugl kostar í raun og veru. Þetta er svona til viðmiðunar fyrir þá sem eru að selja fugla og eins fyrir þá sem eru að kaupa fugla.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Raunverð á ársgamalli hænu.

Útungunaregg kostar 150 kr.stk
Rafmagn í 3 vikur á útungunarvélina kostar um 450 kr en hér er miðað við að vélin sé um 1,1 kw sem er algengast.
Dagsgamall ungi kostar því um 600 kr. Unginn er alinn upp í 7 vikur á Unga I og í
9- 16 vikur á Unga II sem er dýrara fóður en varpkögglar. Síðan er kjúklingurinn alinn upp á varpkögglum frá 16.- 20.viku og þar til hann er ársgamall. Meðaltal á dagsþörf fugls á fóðri er 120 gr.per.dag. 120 gr x 365 dagar er því 42 kg af fóðri fyrsta árið eða svo eða sem nemur einum poka af fóðri sem er 42 kg. Pokinn af varpfóðri kostar 5.090 kr og er 42 kg að þyngd
Hvert kg.kostar því 121 kr sem er þá margfaldað þannig. 42 x 121 gerir því 5.082. kr sem er kostnaður á fóðrinu fyrsta árið.
Plús 600 kr sem kostar að framleiða fuglinn og þá er verið að meina
eins og að framan er komið, 150 kr eggið og 450 kr í rafmagn. Ársgömul hæna leggur sig því á 5.690 kr og þá er ekki talið með vinna eða annar kostnaður eins og rafmagn og fl.yfir skammdegið né kaup á ílátum undir vatn og fóður eða laun að neinu tagi.

Og það er verið að selja unga hænu á 2.500 kr í dag.
Hænu sem kallast unghæna og er komin í varp.

______________________________________________________________________________

Sept. 2008.

Námskeiðið á Hvanneyri gekk vel fyrir sig og og var skemmtilegur hópur þar saman kominn. Mér fannst nú ekki síður fræðandi fyrir mig sjálfan að vera þarna á staðnum en þá sem voru eða komu á námsskeiðið. Þetta var jú fyrsta námskeiðið sem haldið hefur verið og tileinkað Landnámshænunni sjálfri og verður vonandi framhald þar .

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Til hamingju með daginn !

Já þá er bara komið að því....hver hefði trúað því að þetta liði allt saman svona fljótt og hratt ? Þetta er nú bara alveg ótrúlegt en í dag 30. ágúst eru nú liðin 30 ár frá því ég fékk mína fyrstu fugla frá Keldum og er stofninn minn því 30 ára gamall í dag 30.ágúst 2008.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ágúst.2008.

Þá er Landbúnaðarsýningunni Sveitasæla 2008 á Sauðárkróki lokið og tókst hún frábærlega vel í alla staði. Rosalega vinna fór í undirbúning fyrir sýninguna og tók það mig um mánuð að klára allt sem þurfti að gera.Það fóru svo heill dagur í að setja upp sýninguna sjálfa . Gífurlegur fjöldi fólks kom á sýningarsvæði Landnámshænunnar og var stöðugur straumur þar alla helgina og fullt útúr dyrum. Um 1600 mann kusu um fallegasta fuglinn og var lokað fyrir kosningu kl 13.á sunnudeginum og úrslit kynnt á sviðinu kl 15 .sama dag.. Úrslitin fóru svo þannig að Áslákur fékk 305 atkvæði og Skvísa fékk 161 atkvæði og unnu þau því kosninguna um fallegasta fuglinn á sýningunni 2008. Þarna sýndi ég alls 95 fugla á öllum aldri fyrir utan 75 unga sem skriðu úr eggjum á sýningunni sjálfri. Það er alltaf jafn gaman og gott að sækja Skagfirðinga heim og hafi þeir kæra þökk fyrir samvinnuna og allt er við kom sýningunni .Vonandi verður framhald á og við sjáumst öll hress og kát á Sveitasælu 2009 þegar þar að kemur. Sérstakar þakkir eru til Rósu Maríu og Eyþórs sem voru sýningarstjórar í ár og einnig kærar þakkir til Hafsteins fyrir allt.

Skagfirðingar,þið eigið heiður skilinn og hafið kæra þökk fyrir mig og Landnámshænuna.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nýjasta blaðið okkar Landnámshænan er komið út ,hægt verður að nálgast það á ýmsum bensínstöðvum um landið á næstunni og á sýningum félagsins nú í sumar.

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

EIns og áður hefur komið fram er bæklingurinn kominnn úr og hefur hann fengið mjög góða dóma,bæði er varðar upplýsingar,lit og útlit.

30 mismunandi tegundir af póstkortum eru komnar og eru þetta mjög fallegar og fjölbreytilegar myndir,bæði af hænum,hönum og ungum.

Stórar veggmyndir eru komnar (40 x 70 cm) alls 12 talsins og verða þær notaðar til kynningar og auglýsingar á sýningum .

Barmmerki eru til og skiltin eru tilbúin.

Merki ræktunarinnar á Tjörn er komið sem segull á bílinn,eru þetta stórar segulmottur sem festast á bílinn,bæði vélarhlíf og hurðir og verður það notað í tengslum vegna sýninga ásamt því að fánar með merkinu verða einnig á bílnum. Er þetta gert til að vekja athygli á Landnámshænunni. Stórir fánar ásamt auglýsingaborðum voru framleiddir sl.ár.

Þá eru kominn barmmerki með merki ræktunarinnar,ískápsseglar með upplýsingum, ísskápsseglar með dagatali og til eru bolir í fallegum lit með merki ræktunarinnar á Tjörn ásamt litlum og fallegum drykkjarkönnum.

Þessar vörur er hægt að panta ásamt bæklingnum ef fólk vill hjá mér.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Síðastliðið sumar eftir að þátturinn í Laufskálanum var tekin hér upp og fluttur á RUV höfðu margir samband við mig bæði með símtali og eins kom mikið af tölvupósti.Fólk var mjög hrifið af þessu og fannst þátturinn takast vel í alla staði.

Meðal þeirra sem höfðu samband við mig eftir þáttin var einn góður maður í Hafnarfirði, Bjarni að nafni en hann og nokkrir aðrir eru félagar þar sem halda hópinn og hittast á Kaffihúsinu Súfistanum í Hafnarfirði vikulega eða svo.Alls eru þetta um 19 menn.Þátturinn vakti mikin áhuga hjá þeim og hafði Bjarni samband við mig fyrir þeirra hönd.Okkur talaðist svo til að ég kæmi á "fund" hjá þeim á Súfistanum þegar ég ætti leið í bæinn til skrafs og ráðagerða og gerði ég það nokkrum vikum seinna.Skráðu þeir sig svo allir í félagið sem stuðnings félagar og borguðu árgjöldin.Þetta er mikill fengur fyrir ungt og lítið félag eins og okkar að fá svona góðan stuðning. En þeir gerðu betur því nú í byrjun apríl komu þessir menn hingað að Tjörn í heimsókn með rútu sem þeir tóku saman á leigu.Þeir skoðuðu búið,sáu fullorðnu hænurnar og hanana(stofninn sem hér er)nýklakta unga,aðstöðuna, bæði hjá fuglunum og ungunum og borðuð hér hádegismat.Svo var farið um Vatnsnesið og skoðaðir markverðir staðir.Um kvöldið var svo borðað saman á Gauksmýri sem er hesta og ferðaþjónustu býli hér að sunnanverðu Vatnsnesi og buðu þeir mér með þangað.Það var virkilega gaman að fá þá hingað,kynnast þeim betur og fyllir mann aukakrafti þegar fólk sýnir þessu svona áhuga sem maður er að gera og vinna að. Og Landnámshænan nýtur góðs af sem er auðvitað mottóið í þessu öllu saman.

Mig langar til að birta hér ynnilegt þakklæti til "Súfistanna" og þakka þeim áhugan,stuðningin,heimsóknina og allt annað sem þeir hafa gert og lagt af mörkum. Strákar ...þetta er ómetanlegt hjá ykkur! ....Hafið kæra þökk fyrir!