Velkomin að Tjörn á Vatnsnesi!

Minni á Facebook síðuna okkar

Eins og er liggur mest öll starfsemi niðri á búinu vegna brunans er varð hér þann 28. mars sl. Sjá tengilinn fréttir.

Að Tjörn á Vatnsnesi er stærsta bú með íslensku Landnámshænuna hér á landi.

Landnámshænsnastofninn á Tjörn varð 30 ára gamall í ágúst 2008.

Stofninn og Staðsettning.

Stofninn sjálfur telur um 200 hænur og 25 hana og er sala á frjóum eggjum og ungum á öllum aldri þar mest allt árið um kring. Fuglarnir eru frjálsir í rúmgóðu húsi og fá alltaf að fara út, allt árið um kring , svo framarlega sem veður leyfir. Þeir hafa frjálsan aðgang í fóður og vatn sem er sjálvirkt og skammta þeir sér því sjálfir hvorutveggja eftir þörfum.

Fyrir þá sem illa þekkja til er Vatnsnesið á Norðvesturlandi og er í Húnaþingi-vestra og er Hvammstangi næsti þéttbýlisstaður. Þegar farið er að Tjörn er ekið í gegnum Hvammstanga og um 32 km norður eftir nesinu. Tjörn er kirkjustaður og nærri því nyrst á Vatnsnesi en Hindisvík er um 5 km norðar með mikið fuglalíf og eitt stærsta selalátur á landinu.

Til fróðleiks má geta þess að leiði Agnesar og Friðriks er í kirkjugarðinum að Tjörn en þau voru síðust sem tekin voru af lífi á Íslandi árið 1830 við Þrístapa hjá Vatnsdalshólum eins og flestum er kunnugt um. Fræg og þekkt er jú sagan af þeim hjúum.

Litir og lýsing.

Hænsnahópurinn á Tjörn er mjög litskrúðugur og eru fuglar til í má segja ótal litum hér á bænum og koma nýjir litir fram á hverju ári.. Má þar telja t.d.svartar, svartar með ljósum rákum, svartar með hvítum doppum,dökk brúnar, brúnar með hvítum dropum, millibrúnar, ljósbrúnar, hvítar, rauðbrúnar, ljósgráar, dökkgráar, gráar með hvítum doppum, bleikar, allavega yrjóttar og rákóttar hænurbæði með ljósa og dökka grunnliti. Mikið ber á svörtum og brúnum hænum enda er dökki liturinn ríkjandi en eins og sagði eru margir aðrir litir til og litadýrðin er mikil. Gráí og guli liturinn hefur einnig sótt á síðustu árin.

Til er hænur með stóra toppa á höfði, vangabrúska,brúska undir gogginum og fiður á fótum,bæði á leggjum og fram á tær. Landnámshænan er þekkt fyrir litaafbrigðin og toppana og hafa allar hænur toppa þó mismiklir séu þeir allt frá litlum og uppí stóra brúska.

Allar gerðir eru til af kömbum t.a.m.krónukambur,rósakambur,kórónukambur og sá einfaldi en hann var algengastur þó hinir séu að sækja á í ræktuninni .

Upphaflegi stofninn.

Upphaflegi stofnin á Tjörn (áður að Hóli í Hvammssveit) er kominn frá RALA á Keldum árið 1978.Til mín komu alls 12 fuglar,10 hænur og tveir hanar og var svarti og brúni liturinn ríkjandi í þeim.Voru þetta fuglar sem Dr. Stefán Aðalsteinsson safnaði saman víða af landinu um 1974, mest þó frá Austurlandi og Suðausturlandi og var það gert til að forða stofninum frá útrýmingu eins og þá stefndi í. Talið er að á þessum tíma hafi eingöngu verið til á milli 3-400 hænur af þessum stofni á landinu öllu. Á þessum tíma var nefnilega hvíti og brúni ítalinn í algleymingi á flestum bæjum og fáir héldu í íslensku Landnámshænuna þar sem Ítalinn þótti verpa betur. Íslenska hænan er þó mun harðgerðari en Ítalinn, þolir betur að vera úti og þolir allar aðrar breytingar, t.d. fóðurbreytingar, veðráttu o.fl. mun betur en Ítalinn án þess að tapa niður varpi. Síðan 1978 hafa ekki verið aðrir hænsnastofnar hjá mér með íslensku hænunni.

Nokkrum árum seinna bættust svo við 10 fuglar frá Steinum II í Stafholtstungum en þeir fuglar eru af sama stofni og mínn stofn er eða frá Rala á Keldum. Að Steinum II komu fuglarnir á sínum tíma frá Hvanneyri.

Í dag er íslenska Landnámshænan komin mjög víða, bæði í sveitirnar og víða í þéttbýlisstaðina og hefur aldrei verið vinsælli en einmitt nú.

Íslenska Landnámshænan er virkilega skemmtilegur fugl og hver einstaklingur með sinn karakter eins og það er kallað. Fuglinn er mannelskur og hænist vel að manni og hægt er að temja hann og kenna honum ýmislegt. Þó ber að hafa í huga að fara að öllu með gát og alltaf rólega að fuglunum, eins og öllum dýrum. Hávaði,snöggar hreifingar og læti kvekkir þá eins og allan annan búsmala.

Velkomið er að hafa samband og leita upplýsinga um það sem fólk vill vita og verður leyst úr því eftir bestu getu.

Með bestu kveðju

Júlíus Már Baldursson

Tjörn Vatnsnesi

531 Hvammstangi

Símar ...... 451-2271..... og ...... 861-3348

Tölvupóstur : juliusb@simnet.is og tjorneitt@simnet.is

Counter Stats

 

Styrktaraðilar